Velkomin á vef Kertaverksmiðjunnar Heimaeyjar
Heimaey kertaverksmiðja er verndaður vinnustaður, stofnaður 6. september 1984.
Lögð er áhersla á að skapa atvinnutækifæri fyrir þá sem búa við fötlun og veita starfsþjálfun/hæfingu með það að markmiði að efla starfsfærni viðkomandi. Á það við hvort sem starfsmaður stefnir á almennan vinnumarkað seinna meir eða áframhaldandi starf á vernduðum vinnustað.
Hjá Heimaey kertaverksmiðju starfa allt að 10 - 12 einstaklingar með fötlun og er starfsgetan mismikil sem og eðli fötlunar þeirra. Boðið er upp á hálf dags störf, fyrir eða eftir hádegi.
Í Heimaey starfa auk þess forstöðumaður, þroskaþjálfi /ráðgjafi, verkstjóri þjónustunotenda og sölu og markaðsfulltrúi.
|